Jarðskjálftar tengjast Tsunami. Tsunami eru orkumiklar flóðbylgjur, þær ferðast með miklum hraða á yfirborði hafsins. Tsunami verða vegna jarðskjálfta, eldgosa og skriðufalla á hafsbotni eða við strönd. Stærstu jarðskjálftar á hafsbotni eru yfirleitt á samreksbeltum. Tsunami er alþjóðlegt orð yfir flóðbylgjur. Flóðbygjur eru sjaldgæfar við Ísland. Þær hafa samt valdið skaða þegar snjóflóð hafa fallið í sjóinn fram í þröngum fjörðum Austfjörðum og Vestfjörðum. Það eru sérstök viðvörunarkerfi á stöðum í heiminum þar sem verða mikið af flóðbylgjum. Ef það verða jarðskjálftar á hafsbotni og ef flóðbylgja hefur myndast er viðvörun send til allra ríkja nálægt þessu hafi.