HVAÐ ERU JARÐSKJÁLFTAR |
Jörðin er lagskipt og er ysta lag hennar samansett af jarðskorpuflekum. Þessir jarðskorpuflekar eru á stöðugri hreyfingu vegna iðustrauma og möttulstróka langt inn í jörðinni. Jarðskjálftar verða í jarðskorpunni vegna þessara hreyfinga en með tímanum byggist upp spenna í berginu og þegar bergið getur ekki haldið í við þessa spennu losnar hún á einu augnabliki og jörðin skelfur allt um kring.
|